Við hönnum og smíðum vefi sem eru gerðir fyrir þitt fyrirtæki: skýr skilaboð, uppbygging sem leiðir fólk áfram og kóði sem hleðst hratt og virkar fyrir öll.
Gagnaver vildi hætta að tala bara við tæknifólk. Við hönnuðum og smíðuðum vef sem leiðir fólk að réttri hýsingu með fjórum spurningum á mannamáli, á íslensku eða ensku, þar sem efnissíður senda ekkert JavaScript.
Vefur sem selur vefsmíði er sjálfur sýnishorn. Gamli vefurinn okkar var hálfkláraður og sagði ekki satt um það sem við gerum. Við endursmíðuðum hann frá grunni og gerðum gæðakröfurnar að hluta af smíðinni sjálfri.
Vefsíðugerð
Leitarvélabestun
Tækni sem við notum
Við veljum tæknina eftir verkefninu, ekki öfugt.
Astro
WordPress
Next.js
TypeScript
Tailwind CSS
Figma
Spurt og svarað um vefsíðugerð
Hvað kostar vefsíðugerð?
Verðið ræðst af fjölda ólíkra síðugerða, hversu mikið efni þarf að skrifa eða flytja, hvaða kerfi þarf að tengja og hvort vefurinn sé á fleiri en einu tungumáli. Eftir fyrsta samtal færðu skriflegt tilboð sem sundurliðar hvað er innifalið og hvað ekki. Ef fjárhagsramminn passar ekki við umfangið segjum við það strax og stingum upp á áföngum.
Hvað tekur langan tíma að gera vefsíðu?
Það fer eftir umfangi og því hversu fljótt efni, myndir og ákvarðanir liggja fyrir, sem er oftast það sem tefur mest. Í tilboðinu færðu tímaáætlun með áföngum og dagsetningum svo þú vitir hvenær þú sérð hönnun og hvenær vefurinn fer í loftið. Sérsmíðaður vefur tekur oft 6–12 vikur, eftir umfangi.
Hver er munurinn á sérsmíðuðum vef og WordPress-sniðmáti?
Sniðmát er hannað fyrir alla og ber oft með sér mikinn aukakóða sem hægir á vefnum. Sérsmíðaður vefur er hannaður utan um þitt efni og þín markmið og inniheldur bara það sem þarf. Við notum WordPress þegar það hentar, til dæmis fyrir netverslanir eða mikið efni, en þá smíðum við þemað sjálf í stað þess að kaupa tilbúið.
Getum við breytt efni á vefnum án forritara?
Já. Við setjum upp vefumsjón sem hentar teyminu þínu, hvort sem það er WordPress eða annað kerfi, og sýnum þér hvernig á að nota það. Markmiðið er að daglegar breytingar á texta, myndum og fréttum kalli ekki á forritara.
Hver á vefinn og kóðann?
Réttindi yfir hönnun og kóða eru skilgreind skriflega í samningnum áður en vinna hefst, þar á meðal hvaða leyfi þú færð til að nota, breyta og þróa kóðann áfram. Við mælum með að lénið sé skráð á þig og efnið er alltaf þitt.
Hvað gerist eftir að vefurinn fer í loftið?
Hýsingin getur verið hjá Gagnaveri, sem er rekið af sama félagi og við, eða þar sem þú kýst. Við bjóðum upp á viðhald, uppfærslur og áframhaldandi umbætur, en þú ræður hvort og hversu mikið. Viðhaldssamningur er ekki skilyrði fyrir því að fá vefinn afhentan.
Leiðarvísir um val á milli sérsmíðaðs vefs og vefs í áskrift: hvenær hvor leiðin hentar, hvað þú átt að spyrja um og hvernig þú berð kostnaðinn saman.
Vefsíðugerð
Vefur í áskrift
Hýsing og rekstur
Þegar vefurinn er tilbúinn getur hann farið í hýsingu hjá Gagnaveri, sem er rekið af sama félagi og Íslandsvefir. Afrit, uppfærslur og eftirlit eru þá á einum stað.