Stafræn markaðssetning
Stafræn markaðssetning sem þú getur mælt
Auglýsing sem enginn mælir er ágiskun. Við setjum upp mælingarnar fyrst og keyrum svo herferðir á Google og Meta sem eru tengdar því sem gerist á vefnum.
Í hnotskurn
- Mælingar settar upp áður en einni krónu er eytt
- Google Ads og Meta-auglýsingar
- Vörustraumar fyrir netverslanir
- Skýr mánaðarleg yfirferð
Fyrir hverja er stafræn markaðssetning hjá okkur?
Hentar vel ef
- þú auglýsir nú þegar en veist ekki hvað skilar sölu
- þú ert með netverslun og vilt sýna vörurnar á Google og Meta
- þú vilt að auglýsingar og vefur vinni saman, ekki hvort í sínu lagi
Hentar síður ef
- vefurinn breytir illa gestum í viðskiptavini. Þá skila auglýsingar litlu og betra er að laga vefinn fyrst.Skoða vefsíðugerð
- þú þarft fyrst og fremst efnisgerð fyrir samfélagsmiðla. Það er ekki okkar sérsvið.
Hvað fylgir með
Við byrjum á grunninum, mælingunum, og byggjum herferðir ofan á hann.
Mælingar og sölumælingar
Google Analytics (GA4), Google Tag Manager og sölumælingar (e. conversion tracking) fyrir kaup, fyrirspurnir og bókanir.
Google-auglýsingar
Leitar- og verslunarherferðir byggðar á leitarorðum sem sýna kauptilgang.
Meta-auglýsingar
Herferðir á Facebook og Instagram, með markhópum byggðum á gögnum af vefnum.
Vörustraumar
Vörulisti netverslunarinnar tengdur Google Merchant Center og Meta, uppfærður sjálfkrafa.
Samþykki fyrir vafrakökum
Mælingar sem virða samþykki notenda, eins og lög um persónuvernd og fjarskipti gera ráð fyrir.
Skýrslur
Stutt mánaðarlegt yfirlit: hvað var gert, hvað skilaði sér og hvað við prófum næst.
Svona vinnum við markaðssetninguna
Litlar, mælanlegar tilraunir frekar en stórar ágiskanir.
Mælingar fyrst
Við förum yfir og lögum mælingarnar svo við vitum hvað telst árangur.
Áætlun
Markhópar, rásir, skilaboð og fjárhagsrammi, skilgreind í sameiningu út frá markmiðum.
Herferðir
Við setjum herferðir í loftið, prófum skilaboð og færum fjármagn þangað sem það skilar mestu.
Yfirferð og umbætur
Reglulega förum við yfir tölurnar með þér og ákveðum næstu skref.
Verkfæri sem við notum
Viðurkennd verkfæri frá Google og Meta, sett upp þannig að gögnin séu rétt.
- Google Ads
- Meta Ads
- GA4
- Google Tag Manager
- Google Merchant Center
- Looker Studio
Spurt og svarað um stafræna markaðssetningu
Hvað kostar að auglýsa á Google eða Facebook?
Kostnaðurinn skiptist í tvennt: auglýsingaféð sem fer beint til Google eða Meta, og vinnuna við uppsetningu, umsjón og greiningu. Auglýsingaféð ræðst af samkeppninni um markhópinn og hversu hratt þú vilt ná árangri. Við hjálpum þér að setja raunhæfan ramma og byrja smátt.
Hvort er betra, Google-auglýsingar eða Meta-auglýsingar?
Þær gera ólíka hluti. Google nær til fólks sem er þegar að leita að því sem þú selur, en Meta nær til fólks sem passar við markhópinn áður en það byrjar að leita. Flest fyrirtæki byrja þar sem kauptilgangurinn er skýrastur og bæta hinu við þegar mælingarnar sýna hvað virkar.
Hvernig sé ég hvað skilar sölu?
Með sölumælingum sem tengja hverja sölu eða fyrirspurn við rásina sem hún kom frá. Við setjum þær upp í GA4 og auglýsingakerfunum og sýnum þér í skýrslunni hvaða herferðir skila sér, ekki bara hve margir smelltu.
Þarf ég samþykki fyrir vafrakökum vegna auglýsinga?
Já, mælingar og auglýsingakökur sem eru ekki nauðsynlegar fyrir virkni vefsins þurfa samþykki notandans. Við setjum upp samþykkisglugga og mælingar sem virða valið. Ef þú ert í vafa um lagalegu hliðina mælum við með að þú fáir ráðgjöf lögfræðings.
Hvernig tengjast auglýsingar netversluninni?
Með vörustraumi sem sendir vörulistann, verð og lagerstöðu sjálfkrafa til Google Merchant Center og Meta. Þá geta auglýsingarnar sýnt réttar vörur á réttu verði, og uppseldar vörur detta út án handavinnu.
Viltu vita hvað auglýsingarnar skila?
Segðu okkur hvar þú auglýsir í dag og hvað þú vilt ná fram. Við byrjum á mælingunum.