Fara beint í efnið
ÍslandsvefirValmynd

Leitarvélabestun

Leitarvélabestun sem byrjar í kóðanum

Fólk sem leitar að því sem þú selur er oft komið langt í kaupferlinu. Með SEO-þjónustunni okkar sjáum við til þess að vefurinn þinn sé tæknilega traustur, hraður og með efni sem svarar spurningum fólks.

Í hnotskurn

  • Tæknileg úttekt og lagfæringar
  • Leitarorð greind á íslensku og ensku
  • Efni sem svarar raunverulegum spurningum
  • Mánaðarlegar mælingar sem þú skilur

Fyrir hverja er leitarvélabestun?

Hentar vel ef

  • vefurinn er til en fáir finna hann á Google
  • þú ert að endurnýja vefinn og vilt ekki tapa núverandi stöðu
  • þú selur vöru eða þjónustu sem fólk leitar að
  • þú vilt treysta minna á keyptar auglýsingar til lengri tíma

Hentar síður ef

  • þú þarft sölu strax í þessari viku. Leitarvélabestun tekur tíma og þá henta auglýsingar betur.Skoða stafræna markaðssetningu
  • þú leitar að loforði um fyrsta sætið. Það getur enginn lofað af heiðarleika.

Hvað fylgir með

Leitarvélabestun skiptist í þrennt: tæknina, efnið og mælingarnar. Við sinnum öllu þrennu.

  • Tæknileg úttekt

    Skráning, vefkort, tilvísanir, tvítekið efni, aðalslóðir (canonical) og villur sem hindra Google.

  • Hraði og Core Web Vitals

    Mælingar og lagfæringar á Core Web Vitals, mælikvörðum Google á upplifun: hleðslutíma, stöðugleika og svörun, sérstaklega í síma.

  • Leitarorðagreining

    Hvað fólk slær inn, í hvaða beygingarmyndum og hvaða síða á að svara hverju.

  • Efni og fyrirsagnir

    Titlar, lýsingar og texti sem svarar spurningum, ásamt tillögum að nýju efni.

  • Skipulögð gögn

    Schema.org-merkingar svo leitarvélar og gervigreindarleit skilji hvað síðan fjallar um.

  • Mælingar og skýrslur

    Search Console og Google Analytics (GA4) sett upp rétt, og stutt yfirlit yfir hvað breyttist og hvers vegna.

Svona vinnum við leitarvélabestun

Fyrst lögum við það sem hindrar, svo byggjum við upp það sem vantar.

  1. Úttekt

    Við förum yfir tæknilega stöðu, núverandi umferð og hvar samkeppnin stendur.

  2. Forgangsröðun

    Þú færð lista yfir aðgerðir, raðaðar eftir áhrifum og fyrirhöfn, svo stærstu atriðin komi fyrst.

  3. Lagfæringar og efni

    Við lögum tæknina, endurskrifum titla og lýsingar og vinnum nýtt efni með þér.

  4. Mælingar og eftirfylgni

    Við fylgjumst með röðun í leitarniðurstöðum, umferð og fyrirspurnum og stillum af eftir þörfum.

Verkfæri sem við notum

Mælingar byggja á gögnum frá Google sjálfu, ekki ágiskunum.

  • Google Search Console
  • GA4
  • PageSpeed Insights
  • Lighthouse
  • Schema.org
  • Bing Webmaster Tools

Spurt og svarað um leitarvélabestun

Hvað er leitarvélabestun?

Leitarvélabestun (SEO) er vinna sem hjálpar leitarvélum að finna, skilja og treysta vefnum þínum, svo hann birtist þegar fólk leitar að því sem þú býður. Hún snýst um tæknilega uppbyggingu, hraða, efni sem svarar spurningum og tengla frá öðrum vefjum.

Hvernig kemst ég ofar á Google?

Það er engin ein brella. Vefurinn þarf að vera tæknilega aðgengilegur leitarvélum, hraður í síma og með efni sem svarar því sem fólk leitar að betur en aðrar síður gera. Tenglar frá traustum vefjum hjálpa líka. Við byrjum á úttekt sem sýnir hvað heldur vefnum niðri og hvað skilar mestu, en enginn getur lofað fyrsta sætinu af heiðarleika.

Sinnið þið leitarvélabestun fyrir WordPress og WooCommerce?

Já. Á WordPress-vefjum og WooCommerce-netverslunum skoðum við meðal annars þemu og viðbætur sem hægja á vefnum, vöru- og flokkasíður sem keppa um sömu leitarorð og skipulögð gögn fyrir vörur. Lagfæringarnar eru gerðar í kóðanum og stillingunum, ekki bara með viðbót.

Hversu langan tíma tekur leitarvélabestun að skila árangri?

Tæknilegar lagfæringar geta skilað sér fljótt, en efni og traust byggjast upp yfir lengri tíma. Hraðinn fer eftir samkeppninni um leitarorðin, aldri og stöðu vefsins og hversu mikið er gert. Við setjum upp mælingar strax svo þú sjáir þróunina frá fyrsta degi.

Hvað kostar leitarvélabestun?

Kostnaðurinn ræðst af stærð vefsins, tæknilegri stöðu hans og því hvort þú vilt staka úttekt og lagfæringar eða áframhaldandi vinnu með efni og mælingum. Við byrjum oft á úttekt, svo þú sjáir hvað þarf áður en þú skuldbindur þig til lengri tíma.

Skiptir íslenskan máli í leitarvélabestun?

Já. Íslenska beygist, og fólk leitar bæði með og án íslenskra stafa, til dæmis „vefsíðugerð“ og „vefsidugerd“. Við greinum hvaða myndir fólk notar og fléttum þær eðlilega inn í fyrirsagnir og texta, án þess að textinn verði stirður.

Þarf ég leitarvélabestun ef ég auglýsi á Google?

Auglýsingar skila umferð á meðan þú borgar, en lífræn (ókeypis) leit heldur áfram að skila þegar vefurinn hefur náð góðri stöðu. Flest fyrirtæki hafa gagn af hvoru tveggja, og gögn úr auglýsingum sýna oft hvaða leitarorð er vert að vinna með í lífrænni leit.

Hvernig mæli ég árangurinn?

Í Google Search Console sérðu birtingar, smelli og röðun í leitarniðurstöðum fyrir hvert leitarorð, og í GA4 hvað fólk gerir eftir að það kemur inn á vefinn. Við setjum hvort tveggja upp og förum reglulega yfir tölurnar með þér á mannamáli.

Viltu vita hvar vefurinn stendur?

Sendu okkur slóðina og segðu hvað þú vilt að fólk finni. Við förum yfir stöðuna og svörum með næstu skrefum.