Vefhönnun og vefþróun
Íslandsvefir
Greining, hönnun, smíði, samþættingar, leitarvélabestun og markaðssetning.
Um okkur
Íslandsvefir smíða vefi fyrir íslensk fyrirtæki. Nú leggjum við alla áherslu á það sem skiptir mestu: sérsmíðaða vefi sem tengjast rekstrinum, finnast í leit og skila árangri.
Sagan
Íslandsvefir hafa smíðað vefi fyrir íslensk fyrirtæki frá árinu 2018. Undanfarin ár hefur starfið að miklu leyti snúist um WordPress-vefi og vef í áskrift: einfaldar lausnir fyrir fast mánaðargjald.
Fyrirtæki þurfa hins vegar æ oftar meira en sniðmát. Þau vilja vefi sem tala við bókhaldið, netverslanir sem halda lagerstöðunni réttri og leitarvélabestun sem byggir á gögnum. Þess vegna höfum við endurskipulagt starfið í kringum sérsmíði: vefsíðugerð, samþættingar, leitarvélabestun og stafræna markaðssetningu. Vefur í áskrift er áfram í boði fyrir þau sem þurfa einfaldari lausn.
Íslandsvefir eru vörumerki Gagnaver Datacenter AB á sviði vefhönnunar og sama fyrirtæki rekur hýsingarþjónustuna Gagnaver. Vefurinn þinn getur því farið frá fyrstu skissu yfir í hýsingu og rekstur án þess að þú skiptir um tengilið.
Bæði nöfnin tilheyra Gagnaver Datacenter AB. Hvort um sig sinnir sínu.
Vefhönnun og vefþróun
Greining, hönnun, smíði, samþættingar, leitarvélabestun og markaðssetning.
Hýsing og rekstur
Vefhýsing, afritun, lén og netþjónar. Vefirnir sem við smíðum geta verið hýstir þar.
gagnaver.isGildin
Fallegur vefur sem skilar engu er sóun. Við byrjum á því sem vefurinn á að ná fram og hönnum út frá því.
Hraði, aðgengi og leitarvélabestun eru byggð inn frá fyrsta degi. Fólk tekur ekki eftir þeim — fyrr en þau vantar.
Þú talar við fólkið sem smíðar. Við segjum hvað er raunhæft og hvenær eitthvað er ekki góð hugmynd, líka þegar það er óþægilegt.
Fáir milliliðir, skýrar ákvarðanir og vinna sem þú getur fylgst með frá upphafi.
Sjá ferlið skref fyrir skrefHvert verkefni byrjar á markmiðum sem öll skilja og hægt er að mæla.
Hönnun og kóði verða til fyrir verkefnið, ekki valin úr vörulista.
Við tengjum vefinn við kerfin sem þú notar nú þegar, til dæmis DK, Reglu og Payday.
Við vinnum á báðum tungumálum og smíðum vefi sem tala fleiri en eitt.
Íslandsvefir eru vörumerki sænska félagsins Gagnaver Datacenter AB.
Segðu okkur hvað þú ert að hugsa. Við segjum hreinskilnislega hvort og hvernig við getum hjálpað.