Fara beint í efnið
ÍslandsvefirValmynd

Verkefni

Verkefnin, skrifuð niður

Hvert verkefni hér er skrifað eins og hvítbók: hver staðan var, hvað átti að nást, hvernig við fórum að því og hvað var mælt. Engar ágiskanir, engar skreyttar tölur.

Öll verkefni

3 verkefni2 verkefni1 verkefni1 verkefni2 verkefni

Sía verkefni eftir þjónustu

Eigið verkefniGagnaver

Gagnaver: hýsing sem allir skilja

Gagnaver vildi hætta að tala bara við tæknifólk. Við hönnuðum og smíðuðum vef sem leiðir fólk að réttri hýsingu með fjórum spurningum á mannamáli, á íslensku eða ensku, þar sem efnissíður senda ekkert JavaScript.

  • Vefsíðugerð
  • Leitarvélabestun

LausnAlmenn lausn, enginn tiltekinn viðskiptavinur

Pantanir sem verða sjálfkrafa að reikningum

Netverslun sem talar ekki við bókhaldið býr til handavinnu og villur. Hér lýsum við hvernig við byggjum tengingu milli WooCommerce og DK, Reglu eða Payday sem býr til hvern reikning einu sinni, heldur birgðum réttum og lætur vita þegar eitthvað bregst.

  • Netverslanir
  • Samþættingar og sérforritun

Eigið verkefniÍslandsvefir

Íslandsvefir: endursmíði á eigin vef

Vefur sem selur vefsmíði er sjálfur sýnishorn. Gamli vefurinn okkar var hálfkláraður og sagði ekki satt um það sem við gerum. Við endursmíðuðum hann frá grunni og gerðum gæðakröfurnar að hluta af smíðinni sjálfri.

  • Vefsíðugerð
  • Leitarvélabestun

Hvernig við skrifum

Hver niðurstaða er rakin til markmiðs

Dæmisögur eru oft myndir og fallegar setningar. Við viljum að þú getir metið vinnuna á eigin forsendum, svo hver saga fylgir sömu uppbyggingu.

  1. Markmið með auðkenni

    Hvert markmið fær auðkenni, til dæmis M1, svo niðurstöður geti vísað í það.

  2. Mælt, ekki áætlað

    Hver tala segir hvaðan hún kemur og hvenær hún var mæld.

  3. Rekjanlegt

    Hver niðurstaða vísar í markmiðið sem hún svarar, svo þú sjáir hvað tókst.

Ertu með verkefni í huga?

Segðu okkur hvað vefurinn á að skila og við svörum með næstu skrefum.