- 4undirsíður
- 5forsniðin útlit að velja úr
- 1tungumál
- Snjallsímavænn vefur
- Grunnleitarvélabestun
- Tenging við Google Search Console
- Uppsetning á Google Business Profile (fyrirtækjaprófíl á Google)
- Kennslumyndbönd
- Hýsing innifalin
Vefur í áskrift
Ekki þurfa öll fyrirtæki sérsmíðaðan vef strax. Vefur í áskrift gefur þér vandaðan, hraðan vef fyrir fast mánaðargjald, og við sjáum um hýsingu og uppfærslur.
Frá 9.490 kr. á mánuði án VSKSjá leiðir og verð
Í hnotskurn
Þetta fylgir öllum leiðum. Hvað skilur leiðirnar að sérðu í verðtöflunni hér fyrir neðan.
Hannaður út frá vörumerkinu þínu, virkar vel í síma og er einfaldur í umsjón.
Hýsing og regluleg afrit hjá Gagnaveri, sem er rekið af sama félagi og Íslandsvefir.
Við uppfærum WordPress og viðbætur og fylgjumst með öryggi vefsins.
Þú getur leitað til okkar þegar eitthvað kemur upp eða þú þarft hjálp við breytingar.
Titlar, lýsingar, vefkort og Search Console sett upp frá byrjun.
Þrjár leiðir sem allar innihalda hýsingu, uppfærslur, afrit og aðstoð. Þú greiðir stofngjald í upphafi og svo fast mánaðargjald.
Allt sem fylgir Loka, auk:
Allt sem fylgir Þór, auk:
Öll verð eru án virðisaukaskatts og miðast við sölu til fyrirtækja. Íslandsvefir eru vörumerki sænska félagsins Gagnaver Datacenter AB og reikningar til fyrirtækja á Íslandi eru gefnir út með öfugri skattskyldu (e. reverse charge): kaupandinn gerir sjálfur skil á virðisaukaskattinum á Íslandi.
Lágmarksbinding er 24 mánuðir.
Einfalt ferli, því markmiðið er að koma vefnum þínum í loftið án mikillar fyrirhafnar.
Við förum yfir reksturinn, efnið sem þú hefur og hvað vefurinn á að gera.
Við setjum upp vefinn, aðlögum útlitið og setjum inn efnið með þér.
Þú ferð yfir vefinn og við lögum það sem þarf áður en hann fer í loftið.
Vefurinn fer í loftið og við sjáum um hýsingu, uppfærslur og aðstoð.
Traustur, útbreiddur grunnur sem auðvelt er að vinna með.
Öllum leiðum fylgja vefurinn sjálfur, hýsing hjá Gagnaveri, uppfærslur á WordPress og viðbótum, afrit og aðstoð. Leiðirnar eru ólíkar að stærð og virkni: Loki er einfaldur upplýsingavefur, Þór bætir meðal annars við fleiri síðum, fréttasíðu og öðru tungumáli, og Óðinn bætir við vefverslun eða bókunarkerfi. Nákvæman samanburð sérðu í verðtöflunni.
Já, lágmarksbinding er 24 mánuðir. Þú greiðir stofngjald í upphafi og svo fast mánaðargjald. Allir skilmálar koma fram skriflega áður en samið er.
Nei, öll verð eru án virðisaukaskatts og miðast við sölu til fyrirtækja. Íslandsvefir eru vörumerki sænska félagsins Gagnaver Datacenter AB og reikningar til fyrirtækja á Íslandi eru gefnir út með öfugri skattskyldu: kaupandinn gerir sjálfur skil á virðisaukaskattinum á Íslandi.
Vefur í áskrift fer venjulega í loftið á 2–4 vikum. Það sem ræður mestu er hversu fljótt textar og myndir liggja fyrir.
Efnið þitt, textar og myndir, er alltaf þitt. Hvað verður um sjálfan vefinn og hönnunina við lok áskriftar er skilgreint í samningnum, svo það sé ljóst frá byrjun.
Áskrift hentar þegar þú þarft traustan vef fljótt, með fyrirsjáanlegum kostnaði og án sérþarfa. Sérsmíði borgar sig þegar vefurinn þarf að tengjast öðrum kerfum, skera sig úr eða styðja flókið söluferli. Við segjum þér hreinskilnislega hvort hentar þér betur.
Já, það er eðlileg leið: að byrja í áskrift og færa sig yfir í sérsmíði þegar reksturinn vex. Þá nýtum við efnið, reynsluna og gögnin úr áskriftarvefnum sem grunn að nýja vefnum.
Ef vefurinn á að tengjast bókhaldi, selja í stórum stíl eða gera eitthvað sem ekkert sniðmát ræður við, þá er sérsmíði rétta leiðin.
Skoða sérsmíðaða vefiÁskriftarvefir eru hýstir hjá Gagnaveri, sem er rekið af sama félagi og Íslandsvefir. Á gagnaver.is sérðu nánar um hýsinguna, afritin og reksturinn.
Segðu okkur frá rekstrinum og hvað vefurinn á að gera. Við hjálpum þér að velja leiðina sem hentar.