Vefsíðugerð
Hönnun og forritun frá grunni, sniðnar að markmiðum fyrirtækisins og því hvernig þú vinnur.
Það sem þú færð
- Greining og efnisuppbygging
- Hönnun sem þú prófar fyrir smíði
- Hraður, aðgengilegur kóði
Þjónusta
Við hönnum, smíðum, tengjum og kynnum. Þú getur fengið allt ferlið hjá okkur eða bara einstaka hluta, og talar alltaf beint við fólkið sem vinnur verkið.
Flest verkefni byrja á sérsmíðuðum vef eða netverslun. Tengingar, leitarvélabestun og markaðssetning byggja svo ofan á þann grunn.
Hönnun og forritun frá grunni, sniðnar að markmiðum fyrirtækisins og því hvernig þú vinnur.
Það sem þú færð
Netverslun sem talar við lager, bókhald og greiðslugátt, svo þú getir einbeitt þér að sölunni.
Það sem þú færð
Tengingar við DK, Reglu, Payday, greiðslugáttir og kerfin sem þú notar nú þegar.
Það sem þú færð
Það sem þú færð
Auglýsingar og mælingar tengdar vefnum, svo þú sjáir hvað skilar sölu og hvað ekki.
Það sem þú færð
Einfaldari vefur fyrir fast mánaðargjald, hýstur, uppfærður og tilbúinn til notkunar.
Frá 9.490 kr. á mánuði án VSK
Það sem þú færð
Hvort sem verkefnið er ný netverslun eða ein tenging við bókhaldið fylgjum við sömu fimm áföngum, svo ekkert komi á óvart.
Lesa um ferliðVið skilgreinum hvað á að nást og hvernig við mælum það. Þú færð skriflegt tilboð með umfangi, áætlun og kostnaði.
Þú sérð uppbygginguna og útlitið og prófar áður en smíði hefst.
Við smíðum í áföngum og þú prófar jafnóðum á prufuvef.
Vefurinn fer í loftið með tilvísunum frá gömlum slóðum og mælingum.
Við fylgjumst með eftir útgáfu, mælum og bætum.
Dæmi um vinnuna okkar, skrifuð eins og hvítbækur, með heimild fyrir hverri tölu.
Öll verkefniEigið verkefniGagnaver
Gagnaver vildi hætta að tala bara við tæknifólk. Við hönnuðum og smíðuðum vef sem leiðir fólk að réttri hýsingu með fjórum spurningum á mannamáli, á íslensku eða ensku, þar sem efnissíður senda ekkert JavaScript.
LausnAlmenn lausn, enginn tiltekinn viðskiptavinur
Netverslun sem talar ekki við bókhaldið býr til handavinnu og villur. Hér lýsum við hvernig við byggjum tengingu milli WooCommerce og DK, Reglu eða Payday sem býr til hvern reikning einu sinni, heldur birgðum réttum og lætur vita þegar eitthvað bregst.
Segðu okkur frá rekstrinum og markmiðunum. Við hjálpum þér að finna réttu blönduna og segjum þér hreint út ef eitthvað borgar sig ekki.